Выпуск

#0108 Hópfjármögnun og ægivald valkostanna
Svörtu tungurnar · 21 апреля 2026 г. · 41 мин
Þátturinn er í boði Malbygg Er þetta of mikið? Of stórir tölvuleikir? Of mikið af efni á streymisveitum? Of margir valkostir? Verðum við að geta spilað leik og horft og þátt og verið í símanum á sama tíma? Er þetta ný tegund miðlunar í dag? Hannes Óli segir okkur frá "second-screen theory", við syrgjum þá tölvuleiki sem við höfum ekki náð að klára og köfum ofaní allt dótið sem við höfum keypt gegnum hópfjármögnun á borð við Kickstarter. Tossaspilararnir eru mættir á ný fyrir framan hljóðneman og ræða málin af dýpt og næmni, eins og vanalega. Og hver veit nema það komi jafnvel óvæntir gestir eða tveir... Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Hannes, Hjörtur og Snæbjörn – Tónlist: Confusion – Flytjandi: Scorching Ray Taylor